153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

atvinnuréttindi útlendinga.

645. mál
[19:07]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 93/2002. Frumvarpið er m.a. samið í samráði við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og er því ætlað að mæta þeim áherslum sem fram koma í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þess efnis að auka svigrúm og skilvirkni við ráðningu erlendra sérfræðinga og að auðvelda íslenskum nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum að ráða til starfa fólk frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins sem býr yfir sérhæfðri þekkingu.

Í 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga er kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar. Í frumvarpinu er lagt til að við fyrrnefnda 8. gr. laganna verði bætt nýrri málsgrein þar sem kveðið verði á um heimild ráðherra til að birta í reglugerð lista yfir þau störf sem krefjast sérhæfðrar þekkingar sem tímabundinn skortur er á hér á landi. Hafi slíkt starf verið birt í reglugerð er gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun verði heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli ákvæðisins til einstaklings sem er ríkisborgari utan Evrópska efnahagssvæðisins og ráðinn hefur verið til að gegna því starfi sem um ræðir. Ákvæðinu er þannig ætlað að ná til starfa sem ekki krefjast tiltekinnar sérfræðiþekkingar í formi háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntunar sem viðurkennd er hér á landi en krefjast þess þó að þeir einstaklingar sem ráðnir eru til að gegna þeim búi yfir sérhæfðri þekkingu sem tímabundinn skortur er á hér á landi. Gert er ráð fyrir því að þau störf sem um ræðir kunni m.a. að vera á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni eða annarra starfsgreina þar sem störf kunna að krefjast sérhæfingar þeirra sem þeim gegna en þó teljast ekki sem sérfræðiþekking í skilningi núverandi 8. gr. gildandi laga. Reynslan sýnir að í ýmsum starfsgreinum, þar á meðal á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni, hefur þróun starfa og þeirrar hæfni sem krafa er gerð um til þeirra sem slíkum störfum gegna verið hröð og ljóst að slík störf kunna í dag að gera kröfu um sérhæfða þekkingu sem ekki telst sérfræðiþekking í skilningi 8. gr. gildandi laga.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að sá starfalisti sem heimilt verði að birta í reglugerð komi til endurskoðunar með reglulegum hætti. Þannig er gert ráð fyrir að ráðherra skuli a.m.k. á 12 mánaða fresti óska eftir tillögum að breytingum á reglugerðinni frá hlutaðeigandi stofnunum og hagsmunasamtökum. Með hlutaðeigandi stofnunum og hagsmunasamtökum er m.a. átt við Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Vinnumálastofnun, sem og aðrar stofnanir og aðra hagsmunaaðila eftir því sem þurfa þykir hverju sinni. Er þannig gert ráð fyrir að stjórnvöld og hagsmunaaðilar eigi virkt samtal um það hvers konar sérhæfða þekkingu skortir hér á landi á hverjum tíma áður en listi yfir slík störf verður birtur í reglugerð.

Við undirbúning frumvarpsins var m.a. litið til fyrirkomulags á veitingu tiltekinna tímabundinna atvinnuleyfa í nágrannaríkjum, sér í lagi í Danmörku þar sem veiting tiltekinna atvinnuleyfa er með svipuðu sniði og hér er lagt til.

Virðulegi forseti. Líkt og komið hefur fram í máli mínu er í frumvarpinu lagt til að við 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga verði bætt nýrri málsgrein þannig að fleiri störf geti fallið undir ákvæðið en til þessa hefur verið í gildandi lögum. Þá er frumvarpinu ætlað að tryggja markvissari afgreiðslu umsókna um atvinnuleyfi vegna tiltekinna starfa og auka fyrirsjáanleika við framkvæmd laga um atvinnuréttindi útlendinga í tengslum við umrædd störf. Er þannig stigið skref í þá átt að auðvelda aðgengi íslenskra fyrirtækja að sérhæfðri þekkingu sem getur leitt af sér aukna nýsköpun og kröftugri hagvöxt í íslensku samfélagi.

Áður en ég lýk máli mínu tel ég rétt að taka það fram að í ljósi ábendinga frá Alþýðusambandi Íslands sem bárust í samráðsgátt stjórnvalda voru gerðar tilteknar breytingar á frumvarpinu frá þeim drögum sem lögð voru fram til kynningar í samráðsgáttinni. Þannig innihéldu drög að frumvarpinu sem birt voru í samráðsgátt stjórnvalda tillögur að breytingum hvað varðar umsagnarrétt stéttarfélaga í tengslum við umsóknir um tímabundin atvinnuleyfi hér á landi. Í ljósi ábendinga frá Alþýðusambandi Íslands hefur verið fallið frá þeim breytingum að sinni og þannig tekið undir ábendingar ASÍ þess efnis að rétt sé að ræða breytingar á því fyrirkomulagi í stærra samhengi.

Virðulegi forseti. Ísland á í harðri samkeppni við aðrar þjóðir um hæfileikaríkt starfsfólk og ljóst er að mikil eftirspurn hefur verið eftir starfsfólki með sérhæfða þekkingu til að gegna hinum ýmsu störfum á innlendum vinnumarkaði og bendir ekkert til þess að sú eftirspurn fari dvínandi á komandi árum. Reynslan hefur sýnt að skortur á sérhæfðri þekkingu getur hamlað vexti fyrirtækja, ekki síst fyrirtækja í hugverkaiðnaði, og þykir því mikilvægt að auka svigrúm til veitingar atvinnuleyfa til ríkisborgara ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins vegna starfa sem krefjast slíkrar þekkingar.

Líkt og komið hefur fram felur frumvarpið í sér tiltölulega afmarkaðar breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og er því ekki um að ræða stórvægilegar breytingar hvað varðar veitingu dvalar- og atvinnuleyfa hér á landi á grundvelli atvinnuþátttöku en þó er í samræmi við áherslur í stjórnarsáttmála stigið skref í þá átt að auðvelda aðgengi íslenskra fyrirtækja að sérhæfðri þekkingu. Til viðbótar er vert að nefna að nú er starfandi starfshópur um atvinnuréttindi útlendinga sem forsætisráðherra skipaði í því skyni að rýna með almennum hætti fyrirkomulag dvalar- og atvinnuleyfa, ekki síst til að greina hvar séu tækifæri til úrbóta.

Í lokin vil ég leggja áherslu á að þrátt fyrir að þær breytingar sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir að verði að lögum um atvinnuréttindi útlendinga tel ég mikilvægt að ræða áfram í víðara samhengi þær reglur sem gilda um heimild til að veita ríkisborgurum ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins, tímabundin atvinnuréttindi hér á landi, bæði út frá forsendum atvinnulífsins sem og forsendum þeirra einstaklinga sem hingað vilja koma í því skyni að vinna fyrir sér. Ég hlakka til að eiga það samtal hér á þessum vettvangi.

Að lokum legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.