atvinnuréttindi útlendinga.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, fyrir að gera málinu góð skil í ræðustól. Það er eitt sem mig langar að koma að og það er að sérhæft starfsfólk er oft afar eftirsótt á alþjóðamarkaði og það er mögulega ekki nóg að gert að bæta við þeim hópum sem uppfylla þessi skilyrði heldur væri nærtækara að einfalda einnig þetta ferli. Þetta er eitthvað sem ég hef rætt við fyrirtæki sem eru í nýsköpun og eiga oft og tíðum erfitt með að fá starfsfólk og erfitt með að klára það ferli sem það kallar á að fá þetta sérhæfða starfsfólk inn í landið. Ef þú ert búinn að tala við einhverja manneskju og það er búið að semja um kaup og kjör og svo tekur við margra vikna ferli við að fá það á hreint hvort þessi manneskja fái yfir höfuð að flytja til landsins þá getur raunverulega allt fallið um sjálft sig. Þetta ráðningarferli, sem getur oft og tíðum verið afar dýrt, getur farið í súginn. Þetta er eitthvað sem ég myndi hvetja til að yrði skoðað samhliða, að tryggja það að flækjustigið í kerfinu verði ekki fjötur um fót, að það sé tekið tillit til þess að hlutirnir þurfi að gerast á ákveðnum hraða, að það megi ekki dragast úr hófi að klára hlutina.