153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

atvinnuréttindi útlendinga.

645. mál
[19:15]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir þessa ágætu umræðu. Ég ætla að fá að taka undir með hv. þingmanni þegar hann talar um að það væri hægt að gera ýmislegt sem gæti einfaldað kerfið. Þetta er einmitt eitt af því sem sá starfshópur forsætisráðherra sem ég nefndi hér áðan er að taka til skoðunar. Ég hef aflað mér upplýsinga að sjálfsögðu frá Vinnumálastofnun um þann tíma sem það tekur að afgreiða atvinnuleyfi og hann er að meðaltali 21 dagur, sem er kannski ekkert óskaplega langt. Í sumum tilfellum tekur það ekki nema einn til tvo daga. Ástæðan fyrir því þegar þetta tekur langan tíma er yfirleitt að það vantar gögn, einhver gögn sem þarf í málinu, en alla jafna á þetta að geta gengið tiltölulega smurt fyrir sig um leið og allar forsendur fyrir bæði dvalarleyfi og atvinnuleyfi liggja fyrir. Ég get ekki annað sagt en að ég held að þetta sé eitthvað sem við munum reyna að vinna áfram með og þakka hv. þingmanni fyrir þessa ágætu ábendingu.