153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

atvinnuréttindi útlendinga.

645. mál
[19:17]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, fyrir svar við andsvari. Það er gott að heyra að það sé verið að skoða akkúrat þessa hluti. Það sem ég myndi kannski að lokum vilja stinga að, sem gæti nýst í þessu samhengi, er að fyrirtæki sem hefur slíkt ráðningarferli gæti verið búið að forvinna, gæti jafnvel verið búið að senda inn umsókn þó að ekki væri búið að semja um starf og þá gæti verið hægt að byrja að taka afstöðu til þess hvort hægt verði að bregðast við þannig að hægt sé að klippa af því ferli. Þótt tveir dagar, þrír dagar, 21 dagur, sé mögulega ekki langur tími þá getur það hins vegar verið tími þar sem viðkomandi raunverulega veit ekki hver staðan er. Hann getur þá kannski ekki sagt upp í þeirri vinnu sem hann er í og þetta er möguleg óþarfa flækja sem væri vel hægt að hjálpa til með því að gera kerfið ögn liprara og gera fólki kleift að vera mögulega búið senda inn umsókn sem væri þá komin þegar í vinnslu.