atvinnuréttindi útlendinga.
Virðulegur forseti. Ég held að það sé rétt að taka það líka fram, líkt og kom fram í framsöguræðu minni, að með þeirri leið sem við erum að fara núna erum við að stíga ákveðið skref til einföldunar. Í dag er þetta þannig að það fólk sem þessi tillaga að lagabreytingu nær utan um er það sem sækir um leyfi á grundvelli 8. gr. um sérfræðiþekkingu. Ef fólk uppfyllir ekki þau skilyrði hennar um menntun þá í flestum tilfellum er því beint í 9. gr. sem er sú sem fjallar um skort á starfsfólki. Þannig að með því að búa til lista í reglugerð yfir þau störf sem falla undir þetta nýja ákvæði sem hér er lagt til erum við auðvitað að einfalda málsmeðferðina því að það þarf þá ekki að fara í gegnum það ferli að kanna fyrir hvern og einn hvort viðkomandi uppfylli þau skilyrði sem í dag eru gerð til menntunarinnar, vegna þess að í reglugerðinni er einfaldlega listi yfir þau störf sem eru þess eðlis að þau falla undir þetta nýja ákvæði laganna.