153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

varamenn taka þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hafa bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Helga Vala Helgadóttir og Kristrún Frostadóttir verði fjarverandi á næstunni og frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Lilja Alfreðsdóttir og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Þá hafa borist bréf frá Birni Leví Gunnarssyni, Andrési Inga Jónssyni og Jódísi Skúladóttur um að þau verði fjarverandi á næstunni.

Í dag taka því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Magnús Árni Skjöld Magnússon, en 1. varamaður hefur boðað forföll, 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, Viðar Eggertsson, og víkur þá 1. varamaður, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, af þingi en hún hefur boðað forföll, 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, Friðrik Már Sigurðsson, 1. varamaður á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi suður, Halldór Auðar Svansson, 1. varamaður á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, Lenya Rún Taha Karim, og 2. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi, Kári Gautason, en 1. varamaður hefur boðað forföll.

Magnús Árni Skjöld Magnússon, Friðrik Már Sigurðsson, Halldór Auðar Svansson, Lenya Rún Taha Karim og Kári Gautason hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.

Landskjörstjórn hefur gefið út tilkynningu á grundvelli 1. mgr. 113. gr. kosningalaga til Viðars Eggertssonar. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kosningu og kjörgengi hans.