153. löggjafarþing — 65. fundur, 20. feb. 2023.
drengskaparheit.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd mælir einróma með staðfestingu kosningar Viðars Eggertssonar og telst það samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.
Viðar Eggertsson hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Viðar Eggertsson, 3. þm. Reykv. s., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]