153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:04]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hafa borist bréf frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 990, um kolefnisbókhald, frá Líneik Önnu Sævarsdóttur, og á þskj. 975, um viðbrögð við vanvirðandi framkomu af hálfu ráðherra eða ráðuneytisstjóra og sálfræðiþjónusta fyrir starfsmenn ráðuneyta, frá Helgu Völu Helgadóttur.

Einnig hefur borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 996, um ljósmæður og fæðingarlækna, frá Gísla Rafni Ólafssyni.

Þá hafa borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 636, um fjölgun starfsfólks og embættismanna, og þskj. 976, um viðbrögð við vanvirðandi framkomu af hálfu ráðherra eða ráðuneytisstjóra og sálfræðiþjónusta fyrir starfsmenn ráðuneyta, báðar frá Helgu Völu Helgadóttur, á þskj. 947, um innritun í verk- og iðnnám, frá Evu Sjöfn Helgadóttur, á þskj. 747, um skipulag og stofnanir ráðuneytis, frá Diljá Mist Einarsdóttur, á þskj. 1008, um kynsegin fólk í íþróttum, frá Indriða Inga Stefánssyni, og á þskj. 1036, um samninga við skólaþjónustu, frá Eyjólfi Ármannssyni.

Að lokum hafa borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 286, um búsetuúrræði umsækjenda um alþjóðlega vernd, frá Ásmundi Friðrikssyni, á þskj. 299, um meðalbiðtíma eftir búsetuúrræðum, og þskj. 300, um meðalbiðtíma eftir félagslegri íbúð, báðar frá Evu Sjöfn Helgadóttur, á þskj. 360, um framfærsluviðmið, frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, á þskj. 376, um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu, og á þskj. 385, um aðgengi fatlaðs fólks að réttinum, báðar frá Ingu Björk Margrétar Bjarnadóttur, á þskj. 630, um fjölgun starfsfólks og embættismanna, frá Helgu Völu Helgadóttur, á þskj. 484, um skerðingu réttinda almannatrygginga, og félagslegrar aðstoðar, frá Guðmundi Inga Kristinssyni, á þskj. 573, um móttöku flóttafólks, frá Eydísi Ásbjörnsdóttur, og á þskj. 593, um breytingu á fjárhæðum örorkulífeyris, tekjutryggingar og heimilisuppbótar, frá Jóhanni Páli Jóhannssyni.