153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[15:09]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Frá árinu 2018 hefur legið fyrir greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol. Frá árinu 2018 og allar götur síðan hefur hvílt leynd yfir þessari greinargerð. Nú berast mér þær fregnir að enn og aftur hafi forseti ákveðið að fresta því að aflétta leynd af þessari greinargerð um eina viku í viðbót. Við vitum svo sem ekki hversu margar vikur í viðbót það verða miðað við það sem á undan er gengið. Í síðustu viku bárust okkur fréttir af því að settur ríkisendurskoðandi, Sigurður Þórðarson, sé mjög ósáttur við að Alþingi skuli ekki enn hafa afgreitt greinargerð hans og dragist það enn frekar telji hann rétt að skoða hvernig hann geti brugðist við ávirðingum í sinn garð. Þetta bréf sendi settur ríkisendurskoðandi stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í nóvember sl. og er nú farið að dragast allverulega að bregðast við því bréfi.

Ég vil spyrja: Hvað veldur þessum endalausu töfum hæstv. forseta? Er ekki kominn tími til að þessi greinargerð fái að líta dagsins ljós?