greinargerð um sölu Lindarhvols.
Frú forseti. Mér þykir sérkennilegt að lesa um það í fjölmiðlum að það sé eitthvað annað sem birtist í þessari skýrslu Ríkisendurskoðunar en það sem kom síðan fram í endanlegri skýrslu. Við erum einnig farin að lesa það í fjölmiðlum að farið sé að vitna í þessa tilteknu skýrslu í dómsölum og því er m.a. haldið fram að ríkið hafi orðið af jafnvel hundruðum milljóna vegna sölu út úr Lindarhvoli, að því er virðist til aðila sem tengdust og sátu beggja vegna borðs. Það er auðvitað rannsóknarefni að slíkt skuli eiga sér stað, að stjórnarmenn í Lindarhvoli hafi síðan setið í fyrirtækjum sem var verið að selja og hafi þar af leiðandi getað (Forseti hringir.) komið upplýsingum á framfæri. Ég held því að það sé nauðsynlegt að þetta komi fram en einnig að hugsanlega þurfi rannsóknarnefnd til að skoða þetta.