153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[15:12]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill geta þess, eins og áður hefur verið getið, að spurningin um afhendingu greinargerðar setts ríkisendurskoðanda frá 2018 hefur verið til umfjöllunar í forsætisnefnd og er þar enn. Þar takast á, eins og fram hefur komið, tvenns konar sjónarmið, annaðhvort að við eigi almenn ákvæði upplýsingalaga eða hins vegar sérreglur í lögum um Ríkisendurskoðun, sem fela það í sér að Ríkisendurskoðun getur ákvarðað að gögn sem unnin eru meðan á meðferð máls hjá Ríkisendurskoðun stendur verði ekki gerð opinber. Það hefur verið afstaða ríkisendurskoðanda, bæði þess sem nú situr og þess sem á undan honum sat.

Þess ber líka að geta, eins og hv. þingmenn vita, að skýrsla Ríkisendurskoðunar sem lögum samkvæmt var skilað til Alþingis vorið 2020 var tekin fyrir í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd lögum samkvæmt á síðasta kjörtímabili. Þeirri athugun var ekki lokið en stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd getur tekið málið upp aftur, kjósi hún að gera það, og þar með farið yfir þau álitamál sem uppi kunna að vera um þessa tilteknu starfsemi.