153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[15:13]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Þegar settur ríkisendurskoðandi sem skilaði inn þessari greinargerð árið 2019, sem enn hefur ekki verið birt, kallar beinlínis eftir því í fjölmiðlum og í bréfaskrifum til hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að skýrslan verði birt og sú tafsama meðferð sem sú greinargerð setts ríkisendurskoðanda hefur þurft að sæta í forsætisnefnd blasir auðvitað við þá held ég að margra hluta vegna, bara í ljósi þeirrar áru leyndarhyggju sem virðist umlykja Lindarhvol og málefni þess félags þessa dagana, eigi hæstv. forseti, og ég beini því til hans, að ganga nú til þess verks að klára verkefnið og birta þessa skýrslu til samræmis við það sem ákveðið var í forsætisnefnd í apríl í fyrra. Það er búið að ákveða að birta þessa greinargerð og það er ekki eftir neinu að bíða að klára það og gera hana opinbera sem er í takti við óskir setts ríkisendurskoðanda sem hafa ítrekað komið fram.