153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[15:17]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill minna á að greinargerð setts ríkisendurskoðanda frá sumrinu 2018 fól ekki í sér endanlegar lyktir máls af hálfu þeirrar stofnunar. Um var að ræða skjal sem var sent forseta Alþingis og fleirum til upplýsingar þegar settur ríkisendurskoðandi lét af störfum vegna þess að sú vanhæfisástæða sem fyrir hafði verið hjá þá kjörnum ríkisendurskoðanda var ekki lengur fyrir hendi af því að nýr maður var tekinn við stöðu ríkisendurskoðanda. Þarna var ekki um að ræða endanlega úttekt Ríkisendurskoðunar heldur var áfram unnið að verkefninu á vegum Ríkisendurskoðunar í tvö ár og skýrslu skilað til Alþingis sem hefur verið opinbert gagn frá því í maí 2020. Ég vildi árétta þetta vegna umræðunnar.