153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[15:18]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Virðulegi forseti. Rökin fyrir því hvort upplýsingalög eða sérlög eigi við halda einfaldlega ekki vatni. Þessi útvíkkun og teyging á gildissviði laganna er einhver fráleit aðferð til þess að komast hjá því að birta þessa skýrslu. Þessi skýrsla hefur legið fyrir núna í mjög langan tíma og ég held að við skuldum þjóðinni það, á grundvelli gagnsæissjónarmiða, að birta hana. Ég las eina fyrirsögn um daginn og þar stóð: Leyndarhvol. Mér fannst það svolítið skemmtileg fyrirsögn og það er alveg skemmtilegt að búa til eitthvert orðagrín úr þessu, en kjarni málsins er sá að þetta er grafalvarlegt mál og okkur ber sem þingmönnum, sem eru kjörnir af þjóðinni, skylda til að gæta gagnsæis þegar kemur að öllum störfum okkar.

Ég segi nú bara: Birtum þessa skýrslu og öxlum blessuðu ábyrgðina sem fylgir því að opinbera hana. Hvað er það versta sem gæti gerst, spyr ég nú bara.