greinargerð um sölu Lindarhvols.
Virðulegi forseti. Það er alveg ótrúlegt að það skuli vera fimm ár liðin frá því að þessi greinargerð kom til hæstv. forseta og hún sé ekki enn orðin opinber. Er það virkilega þannig að ef greinargerðir eða skýrslur koma inn sem láta þann flokk sem er með þingforsetaembættið líta illa út þá sé bara hægt að stoppa hlutina, helst fram yfir næstu kosningar eins og gert var við skýrslu um félög í skattaskjólum? Ja, við erum að fara að ræða hér á eftir mjög svarta skýrslu um fiskeldi. Var það eitthvað sem hæstv. þingforseti spáði í að setja bara ofan í skúffu hjá sér til að ekki þyrfti að ræða hversu alvarleg staðan væri þar? Ég bara spyr.