153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[15:21]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill geta þess að lögum samkvæmt fara skýrslur Ríkisendurskoðunar í ákveðinn málsmeðferðarfarveg hér í þinginu. Það á við um endanlegar skýrslur eins og þá sem hér liggur fyrir um fiskeldismál og það átti við um skýrslu Ríkisendurskoðunar um Lindarhvol sem gerð var opinber og kom til þingsins í apríl eða maí 2020. Þær fara allar í þá eðlilegu málsmeðferð sem þingsköp og sérlög gera ráð fyrir. Sú greinargerð sem hér er um að ræða er hins vegar ekki af því tagi heldur er það skjal sem lýsti stöðu vinnunnar þegar einn maður lét af verkinu og annar tók við sumarið 2018 og um það gilda önnur sjónarmið.