greinargerð um sölu Lindarhvols.
Forseti. Nú er það þannig að ólíkt fyrirkomulaginu í öðrum nefndum þingsins er forseti alráður í forsætisnefnd. Þannig getur hann hunsað meirihlutavilja í nefndinni og í raun og veru bara gert eins og honum sýnist. En það er náttúrlega á þeim forsendum að hann er kosinn af okkur þingmönnum og situr í skjóli þingsins sem forseti og á að vera forseti alls þingsins.
Ég spyr mig hvort forseta sé raunverulega stætt á því að standa einn gegn birtingu þessarar greinargerðar þegar það eru augljóslega allir aðrir í nefndinni sem vilja birta hana. Þetta er umdeilt mál og það er verið að kalla eftir gagnsæi. Meira að segja settur ríkisendurskoðandi sjálfur, höfundur greinargerðarinnar, kallar eftir því að þetta verði birt. Það hlýtur að koma sá tímapunktur að forseti áttar sig á því að hann getur ekki leynt þessari skýrslu endalaust. Honum er bara ekki stætt á því. (Forseti hringir.)
Ég bið forseta vinsamlegast um að átta sig á stöðunni, átta sig á því að það er verið að kalla eftir gagnsæi. Endanleg úttekt (Forseti hringir.) setts ríkisendurskoðanda eða ekki, það skiptir ekki máli. Það er meirihlutavilji fyrir þessu og forseti getur ekki setið á þessu endalaust.