greinargerð um sölu Lindarhvols.
Virðulegi forseti. Það eru nokkrir hlutir sem liggja fyrir í þessu máli, t.d. að forsætisnefnd samþykkti á fundi þann 4. apríl í fyrra að birta þessa skýrslu. Síðan koma mótmæli frá Lindarhvol og þau virðast trompa forsætisnefnd. Það þykir mér pínulítið alvarlegt og ekki pínulítið, mér þykir það mjög alvarlegt mál að kjörnir fulltrúar, forsætisnefnd, séu búnir að taka ákvörðun og svo komi álit frá Lindarhvoli sem í rauninni bætir engu við, enda voru þeir búnir að hafa fimm ár til þess að skrifa álit — bætir engu nýju við — og allt í einu skiptir ákvörðun forsætisnefndar engu máli. Það blasir líka við að settur ríkisendurskoðandi óskar eindregið eftir því að þetta verði birt. Hann virðist ekki líta svo á að þetta hafi verið vinnuplagg. Hann virðist líta svo á að hann hafi skilað vinnu sem hann vilji að sé gerð opinber vegna þess að hann liggi undir ámæli. (Forseti hringir.) Svo skilst manni að ekki fari saman þær niðurstöður sem hann komst að og þær sem ríkisendurskoðandi síðar meir komst að í þeirri skýrslu sem gerð var opinber um Lindarhvol. (Forseti hringir.) Þetta bara nær ekki nokkurri einustu átt og ekki síst í þessum málum sem snerta eftirmál hrunsins, þar þarf að opinbera hluti.