153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[15:26]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Ég kem hér upp af því að orðum var beint að hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Nú eru málin þannig hér á hinu háa þingi að hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd getur ekki aflétt trúnaði af greinargerðinni. Það er á borði forsætisnefndar og hefur verið alllengi og eins og þingmenn hafa hér rakið þá virðist vera meiri hluti fyrir því í forsætisnefnd að birta greinargerðina. Ég velti fyrir mér, svona vegna virðingar og ábyrgðar og sjálfstæðis Alþingis Íslendinga, hvort það væri ekki viðurhlutaminnst af hæstv. forseta að birta greinargerðina. Verði hún birt er aldrei að vita nema skýrslan sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd lauk ekki umfjöllun um á síðasta kjörtímabili verði tekin upp aftur. Það hefur þó ekki verið rætt í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og ekki staðið til.