153. löggjafarþing — 65. fundur, 20. feb. 2023.
greinargerð um sölu Lindarhvols.
Forseti ítrekar það sem áður hefur verið sagt, að um málefni Lindarhvols er fjallað í skýrslu sem skilað var til Alþingis vorið 2020. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fjallaði um það á síðasta kjörtímabili en lauk ekki þeirri vinnu. Núverandi stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur vissulega fullt sjálfstæði um það hvort hún tekur það til meðferðar eða ekki. En það er sú skýrsla sem Alþingi hefur til afgreiðslu um þetta mál.