153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[15:30]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Herra forseti. Forseti virðist líta á þessa greinargerð eða skýrslu setts ríkisendurskoðanda sem einhvers konar vinnuplagg í einhverju ferli sem átti að taka einhvern langan tíma, en umræddur aðili gerir það ekki. Hann lítur ekki á þetta sem vinnuplagg. Þetta er sjálfstæð skoðun þess sem framkvæmdi þetta. Hann vill að sjálfsögðu að sú skoðun líti dagsins ljós. Fjármálaráðherra hefur talað um að það sé bara hægt að gera eina skýrslu í hverjum mánuði — bara eina skýrslu. Þýðir það þá að við munum aldrei fá þessa rannsóknarnefnd sem við ætluðum að fá um ÍL-sjóðinn? Mér þykja þetta skrýtin vinnubrögð. Það er þá möguleiki á því, forseti, að drepa niður umræðu og ólíkar skoðanir með því að fá bara einhvern annan til að breyta þessum vondu skoðunum.