greinargerð um sölu Lindarhvols.
Forseti vill taka fram, eins og áður hefur komið fram, að þegar greinargerðinni var skilað sumarið 2018 var ljóst að athugun Ríkisendurskoðunar á málinu var ekki lokið, það átti eftir að afla frekari upplýsinga, það átti eftir að afla andmæla, það átti eftir að fá fleira fram í málinu áður en niðurstaða Ríkisendurskoðunar lægi fyrir. Um var að ræða skjal sem lýsti stöðu málsins þegar þá settur Ríkisendurskoðandi lét af störfum og aðrir tóku við verkefninu. Þetta gerir það að verkum að hér er auðvitað ekki um að ræða endanlega niðurstöðu Ríkisendurskoðunar hvað það mál varðar. Slík niðurstaða kom fram í skýrslunni sem kom til þingsins 2020 og hefur verið til umfjöllunar og getur verið áfram til umfjöllunar ef þingmenn kjósa svo.