greinargerð um sölu Lindarhvols.
Virðulegur forseti. Eins og fram hefur komið hér í umræðunni þá er nú rekið fyrir dómstólum mál er varðar Lindarhvol, mál Frigusar gegn Lindarhvoli í tengslum við sölu á Klakka. Það voru blaðamenn nokkrir sem sátu í gegnum aðalmeðferðina og fluttu af henni fréttir eins og gengur og gerist og það blasir við af þeim fréttum sem úr þeim málflutningi hafa borist að það er eitt og annað sem virðist hafa verið heldur óhönduglega farið með í vinnu Lindarhvols. Þegar við berum saman skýrslu Ríkisendurskoðunar sem barst 2020 og síðan þann tón sem virðist hafa verið sleginn í greinargerð setts ríkisendurskoðanda árið 2018, þá heyrist manni tónninn sem er sleginn í greinargerð setts ríkisendurskoðanda 2018 vera miklu nær þeirri umræðu sem átti sér stað um verklag og framkvæmd sölu (Forseti hringir.) á tilteknum eignum innan úr Lindarhvoli samkvæmt því sem fram kom í fréttum af málflutningi í þessu máli. (Forseti hringir.) Það eitt og sér þykir mér ýta undir að við eigum að birta þessa greinargerð (Forseti hringir.) og við eigum að gera það strax. Það mun gerast á einhverjum tímapunkti. Við skulum ekki tefja það lengur en orðið er.