greinargerð um sölu Lindarhvols.
Herra forseti. Ég verð að játa að þetta er eitt af þeim málum sem hefur kannski vafist helst fyrir mér eftir að ég settist inn á þing. Ég verð að játa að ég skil það ekki alveg. Ef ég skil þetta rétt þá er það þannig að hv. forsætisnefnd er búin að taka ákvörðun um að það eigi að birta skýrsluna. Því langar mig svolítið til þess að spyrja virðulegan forseta: Telur virðulegur forseti sig þess umkominn að snúa við ákvörðun forsætisnefndar eða hvað er það sem verið er að ræða í nefndinni? Nú hefur forseti ítrekað sagt að þetta sé til umfjöllunar í forsætisnefnd og mér skilst að það hafi verið það árum saman. Mig langar til að spyrja: Hvað er verið að ræða? Þarf að taka nýja ákvörðun um að birta þetta eða ætlar forseti að tefja þetta þangað til málið er búið að gleymast? Hver er afstaða forseta til þess sem þarf að ræða í forsætisnefnd? Hvað er það sem þarf að finna út hérna? Ég átta mig ekki alveg á þessu.