153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[15:34]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Það er rétt sem fram kemur hjá hv. þingmanni að forsætisnefnd ákvað síðasta vor að fara í birtingu eða afhendingu á viðkomandi skjali til blaðamanns sem eftir því hafði óskað. Þegar athugasemdir höfðu borist frá Ríkisendurskoðun, og reyndar stjórn Lindarhvols líka, þá var framkvæmdinni á því frestað. Það er síðan til umfjöllunar á vettvangi forsætisnefndar hvort ný ákvörðun verður tekin eða sú fyrri látin standa.