greinargerð um sölu Lindarhvols.
Virðulegi forseti. Það er kominn tími til að hætta að sýna forsætisnefnd þá lítilsvirðingu að gera algjörlega marklausa þá ákvörðun hennar fyrir tæpu ári síðan að birta þessa — hvað sem við skulum kalla það, hvort heldur sem forseti ákveður og hver sem er, sem ákveður að kalla það vinnuplagg eða hvað eina annað sem er. Það breytir engu. Staðreyndin er sú að við viljum láta birta þetta. Það er eiginlega það sem liggur á borðinu. Það má kalla það hvað sem er. Það sem verra er að það dragast upp á yfirborðið alls konar hugmyndir um alls konar leyndó og eitthvað sem væri jafnvel enn þá verra en það að birta ekki þessa skýrslu. Til dæmis hefur fyrrverandi fjármálaráðherra talað um það að það hafi ekki ein einasta króna sem hafi fengist fyrir Lindarhvol og eignirnar þar skilað sér inn í ríkissjóð. Mér finnst það t.d. grafalvarlegt mál og mér finnst það það stórt mál að það sé löngu orðið tímabært að það komi hér bara rannsóknarnefnd sem fjalli um Lindarhvol og allt sem þar gekk á frá A til Ö.