greinargerð um sölu Lindarhvols.
Forseti bendir á enn og aftur að málefni Lindarhvols geta komið til þeirrar umfjöllunar á vettvangi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem sú nefnd kýs þegar hún það kýs, og nefndin getur þá eftir þeim heimildum sem hún hefur aflað þeirra upplýsinga og tekið þau mál til umræðu, fengið þá gesti eða aflað gagna sem hún óskar eftir, eins og reyndar var líka heimilt á síðasta kjörtímabili. En núverandi nefnd, eftir kosningar, getur auðvitað tekið þetta mál upp aftur hvenær sem er og farið í saumana á málefnum Lindarhvols eins og hún óskar.