153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[15:37]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Mér þykja afsakanirnar vera ansi rýrar orðnar þegar verið er að reyna að benda á ástæður fyrir því að vera ekki að birta þessa skýrslu. Það er reynt að benda á að hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd geti bara farið og fjallað um málið og aflað gagna en því miður getur hún ekki aflað þeirra gagna sem um ræðir hér í dag sem eru gögnin sem forseti situr á. Mér er spurn hvort ekki þurfi hreinlega rannsóknarnefnd til að rannsaka embættisfærslur forseta í þessu máli. Af hverju er verið að sitja á þessari skýrslu svona lengi? Af hverju fá þessi gögn ekki að líta dagsins ljós? Hverja er verið að vernda? Eru það einhverjir sem fengu eignir á miklu meiri afslætti (Forseti hringir.) en ættingjar hæstv. fjármálaráðherra fengu?