aðbúnaður fíkniefnaneytenda.
Hæstv. forseti. Í reynd hefur verið unnið að nokkrum málum, m.a. í tíð forvera míns í félagsmálaráðuneytinu, hæstv. ráðherra Ásmundar Einars Daðasonar, þar sem hann greip til þess ráðs m.a. að stofna hóp sem kom með margar góðar tillögur er varða fanga og félagslega þjónustu við fólk þegar það kemur úr fangelsum. Það er dæmi um eitt af því sem stjórnvöld hafa gert til að reyna að sinna þeim hópi. Hér erum við líka að tala um fólk sem á við mjög alvarlegan fíkniefnavanda að stríða. Ég segi það bara að við erum að skoða akkúrat þau mál sem snúa að áfangaheimilum og ég er fullur af vilja til þess að geta stigið einhver skref í þá átt sem allra fyrst.