153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

hækkun vaxta og hagræðingaraðgerðir.

[15:52]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Eins og ég fór hér yfir í fyrra svari er þetta þríþætt verkefni. Vissulega hafa þar opinber fjármál töluvert að segja en við megum ekki gleyma hlutverki Seðlabankans í þessum efnum sem ég fór hér yfir áðan, sem og vinnumarkaðar. Við fylgjumst að sjálfsögðu grannt með stöðu almennings þegar kemur að húsnæðislánum og við erum ekki farin að sjá vísbendingar um vanda vegna yfirskuldsetningar því fasteignaverð hefur auðvitað líka hækkað mikið og þar með talið eignamyndunin. Þar er þetta greiðslubyrðin sem þyngir á og þá vil ég minna á þær aðgerðir sem stjórnvöld gripu til og kynntu í tengslum við kjarasamninga á almennum markaði, sem vörðuðu það að auka hér annars vegar húsnæðisstuðning fyrir þau sem eru á leigumarkaði, þar sem staðan er óneitanlega þyngst því það er tekjulægsti hópurinn, en gleymum því ekki að líka voru hækkuð skerðingarmörk vaxtabóta til að styðja við þau sem eru á eignamarkaði. Því höfum við jafnt og þétt verið að grípa inn í þessa stöðu til að standa vörð um hag almennings. Hvaða hagræðingaraðgerðir eru fram undan? (Forseti hringir.) Ég get bara sagt að við erum að sjálfsögðu að horfa til þess annars vegar, eins og ég sagði áðan, hvernig við getum gripið til aukins aðhalds í rekstri og líka tekjuöflunar í þeim efnum.