staðan á vinnumarkaði.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnirnar. Þessi kjaradeila er, eins og við vitum og höfum séð í fjölmiðlum, í mjög miklum hnút. Það er alveg ljóst að ýmislegt hefur verið reynt. Í síðustu viku óskaði ríkissáttasemjari eftir því að vinna ekki lengur að þessari tilteknu deilu og ég fékk annan í hans stað til þess. Þær viðræður fóru fram núna fyrir helgina og um helgina og niðurstaðan var, eins og við öll vitum, að það náðust því miður ekki samningar. En vonandi verður hægt að taka þann þráð upp aftur því að ég geri þá kröfu til aðila vinnumarkaðarins að þeir semji. Það finnst mér vera þeirra hlutverk, að komast að samkomulagi. Ég hef ekki rætt sérstaklega við settan ríkissáttasemjara um það hvort hann sé bundinn af því sem forveri hans skrifaði undir við stéttarfélagið Eflingu. En það hefur hins vegar komið fram sem álit ýmissa lögfræðinga að það sé eitthvað sem sé ekki hægt að gera, líkt og hv. þingmaður kom inn á. Það hefur ekki verið rætt í ríkisstjórn að setja lög á þessa deilu. Og til að reyna að svara síðustu spurningunni varðandi hvort það sé eðlilegt eða æskilegt að fólk á höfuðborgarsvæðinu fái hærri laun heldur en fólk annars staðar á landinu, þá er auðvitað heilmikill munur á milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar þegar kemur að ýmsum málum, miklu fleiri málum heldur en launum, m.a. hvað snýr að ferðakostnaði, húsnæðiskostnaði, kostnaði við húshitun, kostnaði við að kaupa sér í matinn. Þannig að það er ekki alveg einfalt mál.