153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

staðan á vinnumarkaði.

[15:58]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Telur hæstv. ráðherra að það gæti verið æskilegt að vísa málinu er varðar kjörskrá Eflingar til Hæstaréttar til að fá úr því skorið fyrir Hæstarétti hvaða reglur gildi og hvort vinnumarkaðslöggjöfin eins og hún er núna virki í raun? Þarna virðist hafa komið upp mjög undarleg staða þar sem miðlunartillaga er dæmd lögmæt en mönnum er gert erfitt fyrir að framfylgja henni. Telur hæstv. ráðherra að það gæti verið ráð að fá úrskurð Hæstaréttar um þetta? Varðandi hugsanlega löggjöf, í ljósi þess að ríkisstjórnin hefur ekki rætt þetta nú þegar, mun þá hæstv. félagsmálaráðherra taka þetta upp í ríkisstjórn, þó ekki væri nema til að vinna undirbúningsvinnu ef staðan hér yrði slík að grípa þyrfti inn í?