153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

staðan á vinnumarkaði.

[15:59]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Já, ég tel að það væri mögulega æskilegt að fá úrskurð Hæstaréttar í þessu máli. Ég held að það sé eitthvað sem leiðir bara af þeirri niðurstöðu sem Landsréttur komst að, einfaldlega vegna þess að nú erum við með þá stöðu að hægt er að leggja fram miðlunartillögu en ekki að fá úr henni skorið miðað við það sem Landsréttur setur fram. Í mínum huga er því um óvissu að ræða núna hvað varðar vinnulöggjöfina og ég held að við getum öll verið sammála um að það er ekki mjög æskilegt. En ef ekki þá held ég að það sé óhjákvæmilegt að við skoðum vinnulöggjöfina hvað þetta atriði varðar. Ég held að það segi sig algjörlega sjálft.

Varðandi það síðasta sem hv. þingmaður nefndi þá munum við ræða þessi mál á ríkisstjórnarfundi á morgun en fyrst og fremst fara yfir stöðuna á málinu, (Forseti hringir.) ekki til undirbúnings neinna sérstakra aðgerða af hálfu ríkisstjórnarinnar.