aðgerðir stjórnvalda í þágu tekjulágra.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég ætla að byrja á því að segja að ég get ekki tekið undir þau orð hv. þingmanns að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hirði ekki um að jafna byrðarnar. Ég vil bara benda hv. þingmanni á þá staðreynd að á síðasta kjörtímabili var gripið til breytinga á skattalöggjöfinni þannig að þriðja skattþrepið (Gripið fram í.) var sett inn og það jafnaði nú byrðarnar og kom sér langsamlega best fyrir það fólk sem er tekjulægst í landinu. Augljóslega er ekki hægt að sitja undir því að hér hafi ekkert verið gert til að jafna byrðarnar í landinu. Og hvaða aðgerða hefur ríkisstjórnin síðan gripið til í þeirri dýrtíð sem núna hefur staðið yfir? Ég minni á þær aðgerðir sem var gripið til um mitt síðasta ár þegar horft var til þeirra sem lökust hafa kjörin, m.a. með því að hækka húsaleigubætur. Það var síðan gert aftur um áramótin. Ég vil líka minna á að þá var hækkað, um mitt síðasta ár og auðvitað aftur um áramótin, það sem snýr að örorku- og ellilífeyrisþegum og gripið var til aðgerða í tengslum við kjarasamninga nú um áramótin sem gagnast best þeim sem minnst hafa, barnafólki og þeim sem eru í leiguhúsnæði, og síðan með auknum framlögum inn í almenna húsnæðiskerfið. Við höfum því svo sannarlega gripið til ýmissa aðgerða. Því miður hefur verðbólgan ekki farið niður og það verður því áfram verkefni næstu vikna og missera að ná verðbólgunni niður.