153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

aðgerðir stjórnvalda í þágu tekjulágra.

[16:06]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Líkt og ég rakti í fyrra svari mínu þá hefur verið gripið til fjölmargra aðgerða en hv. þingmaður, það er eins og það núllist alltaf út það sem þegar er búið að gera. Það er alveg með ólíkindum, verð ég að segja. En ég ætla að fá að taka undir eitt sem kom fram í máli hv. þingmanns, þ.e. að við þurfum að sjálfsögðu að huga betur að því hvernig staðan er á leigumarkaði. Þar þurfum við að huga betur að því með hvaða hætti er hægt að koma frekari böndum á þær hækkanir sem þar hafa orðið, svo ég taki eitt dæmi af því sem hv. þingmaður kom inn á. Það voru vissulega stigin einhver skref nú fyrir áramótin með samþykkt á breytingum á lögum um leigumarkaðinn til að safna gögnum, til að vita meira um leigumarkaðinn, en ég get tekið undir að það væri æskilegt að skoða einhvers konar aðgerðir, eins og t.d. leigubremsu.