153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

inngrip stjórnvalda í kjaradeilur.

[16:10]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Þær aðgerðir sem stjórnvöld kynntu í tengslum við gerð kjarasamninga meiri hluta félagsmanna á almennum vinnumarkaði voru aðgerðir sem áttu rætur að rekja til mjög ítarlegs samráðs á vettvangi Þjóðhagsráðs þar sem sitja forystumenn heildarsamtaka launafólks sem og fulltrúar atvinnurekenda, fulltrúar sveitarfélaga og ríkis og Seðlabanka. Það kom mjög skýrt fram þegar þessar aðgerðir voru kynntar að þetta væru aðgerðir stjórnvalda í tengslum við skammtímasamninga sem nú væru undir á almennum vinnumarkaði, að það yrðu ekki sérstakrar aðgerðir fyrir þau sem væru ekki hluti af þeim samningum né heldur í raun og veru fyrir aðra þá kjarasamninga sem á eftir að gera, enda er hér um að ræða skammtímasamninga til eins árs. Þær aðgerðir sem þarna voru kynntar, sem gagnast öllum almenningi í landinu og ég nefndi hér áðan í samtali við hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, eru aðgerðir sem skipta auðvitað mestu fyrir tekjulægstu hópanna. Þá er ég að vitna í húsnæðisstuðning til leigjenda en líka til eiganda sem og auðvitað útvíkkun barnabótakerfisins, sem er önnur aðgerð sem á rætur að rekja til þess sem ákveðið hefur verið á vettvangi Þjóðhagsráðs.

Mér finnst ekki rétt að stjórnvöld stígi inn í kjaradeilu við einstök félög á vinnumarkaði. Mér finnst rétt að stjórnvöld vinni þetta með fulltrúum heildarsamtaka, eins og gert hefur verið undir minni forystu eftir að nýtt Þjóðhagsráð var sett á laggirnar. Þannig náum við fram sem breiðastri sátt um þær aðgerðir. Þegar hv. þingmaður spyr: Á ekki að koma með séraðgerðir inn í þessa deilu? Nei, ég tel ekki svo vera. Við höfum kynnt þær aðgerðir. Það er verið að vinna að áframhaldi þeirra þannig að við séum komin lengra þegar skammtímasamningum lýkur, sem er í raun og veru mjög stutt í, t.d. hvað varðar húsnæðismarkaðinn, mögulegar aðgerðir til að setja á svokallaða leigubremsu. Þar hafa aðilar vinnumarkaðarins verið kölluð til til að taka þátt í þeirri vinnu. Ég held að affarasælast væri einmitt (Forseti hringir.) að þeirri vinnu væri lokið og hún rædd á þessum vettvangi sem er Þjóðhagsráð