inngrip stjórnvalda í kjaradeilur.
Við borðið í Þjóðhagsráði situr t.d. forseti ASÍ. Þar sitja líka forystumenn opinberu félaganna. Þeir aðilar ræða við stjórnvöld um það hvernig þeir vilja að stjórnvöld hagi sínum aðgerðum þegar kemur að því að greiða úr málum vegna kjarasamninga. En frumábyrgðin á því að ná saman er auðvitað við samningaborðið þar sem sitja einstök stéttarfélög og svo auðvitað fulltrúar atvinnurekenda. Ég hef auðvitað af því þungar áhyggjur að þessir aðilar sem bera ábyrgð á því að ná kjarasamningum hafi ekki náð saman og það stefni í jafn harðar aðgerðir og við sjáum nú, gríðarlega harðar og, ef litið er til sögunnar, harðari en við höfum séð árum og áratugum saman. Skylda þessara aðila er að ná samningum við samningaborðið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)Það er stóra málið. Þannig á það að vera í heilbrigðu samfélagi þar sem er heilbrigður vinnumarkaður, að aðilar leysi úr þessum málum sín á milli. Þar gekk félagsmálaráðherra fram þegar fyrri sáttasemjari sagði sig frá deilunni, setti nýjan sáttasemjara sem sat óslitið við borðið til að reyna að ná aðilum saman. (Forseti hringir.) Mér finnst einstaklega dapurlegt að hafa fylgst með þeim skorti á niðurstöðum úr því samtali sem við vorum upplýst um í gær.