farsældarlög og einstaklingsmiðuð nálgun.
Virðulegi forseti. Það er að verða eitt og hálft ár síðan svokölluð farsældarlög voru samþykkt á Alþingi. Markmið þeirra laga er m.a. að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Þessi lagasetning markaði talsverða kerfisbreytingu og tók gildi 1. janúar á síðasta ári, var samþykkt samhljóða í þinginu ef ég man rétt.
Í samtölum mínum við fólk sem vinnur innan þessa geira hefur eitt atriði komið upp sem mig langar til að spyrja hæstv. mennta- og barnamálaráðherra um. Samkvæmt lögum um grunn- og leikskóla hafa skólarnir heimild til að veita börnum samþætta þjónustu, t.d. með nemendavarnarráði. Það er gert á hátt sem er í ákveðinni mótsögn við farsældarlögin. Svo að ég útfæri það aðeins betur er nemendaverndarráð vettvangur fyrir samþætta þjónustu þar sem situr þverfaglegur hópur sérfræðinga sem fer yfir málefni barna sem þurfa meiri aðstoð. Þau hafa heimildir gagnvart persónuverndarlögum til að ræða mörg mál en í farsældarlögunum er gert ráð fyrir að samþætt þjónusta sé í kringum hvert og eitt barn og að sú þjónusta sé að beiðni foreldra. Þessar heimildir skarast og það liggur í hlutarins eðli að það er að einhverju leyti skilvirkara að fara í gegnum fimm til sex mál á hverjum fundi þessara sérfræðinga frekar en að kalla til fundar um hvert einstakt mál.
Mig langar því til að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig tryggjum við að þjónustustigið verði í raun betra við þessa yfirfærslu yfir í einstaklingsmiðaða nálgun? Ég spyr líka hvort ráðherrann telji að þeir fjármunir sem settir voru aukalega í málaflokkinn dugi til að ná því markmiði.