153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

farsældarlög og einstaklingsmiðuð nálgun.

[16:17]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að þessi lög voru samþykkt fyrir einu og hálfu ári og tóku gildi fyrir rúmu ári síðan og í þeim felst talsverð kerfisbreyting sem m.a. felur það í sér að við erum að taka okkur þrjú til fimm ár í innleiðingartíma laganna. Í dag eru fjögur sveitarfélög sem eru að vinna að innleiðingu laganna sem forystusveitarfélög, það eru Vestmannaeyjabær, Árborg, Akranes og Akureyri. Við erum að fara að fá fleiri sveitarfélög núna af stað af krafti inn í þessa vinnu. Og til þess að svara fyrirspurn hv. þingmanns þá er annað sem þessi lög í rauninni kalla á en það eru breytingar á skólakerfinu, á grunnskólalögum og það er bandormur sem er á síðustu metrunum í smíðum í ráðuneytinu en ég reikna með því að hann verði mögulega kynntur fyrir þingmannanefnd í málefnum barna á morgun. Hann snýr að breytingum á ýmsum lögum er varða menntakerfið þar sem m.a. þarf að taka á þeim þætti sem hér er nefndur. En síðan er líka hluti sem verður tekinn inn í nýja vinnu við nýja skólaþjónustulöggjöf en við reiknum með því að næsta haust komi hér heildstæð skólaþjónustulöggjöf sem m.a. fjalli um þrepaskiptan stuðning og hvernig farsældarlögin verði innleidd í skólakerfinu, líka með nýrri þjónustustofnun.

Heilt yfir vil ég segja að þetta fer ágætlega af stað en það er fullt af árekstrum. Hv. þingmaður nefnir einn þeirra. Ég hugsa, ef ég hefði lengri tíma, að ég gæti nefnt svona fimm til tíu í viðbót. Það er liður í innleiðingunni að svo sé. Síðan varðandi fjármögnun er verið að — ég kem inn á það í seinna andsvari.