farsældarlög og einstaklingsmiðuð nálgun.
Virðulegur forseti. Rétt áður en ég kem að fjármagninu vil ég bara taka undir með hv. þingmanni, og þess vegna erum við enn þá með þingmannanefnd starfandi. Í hvert sinn sem eitthvað kemur upp þá er það rætt þar með fulltrúum allra stjórnmálaflokka. Eitt af því sem þarf að taka á eru þessir flöskuhálsar sem hv. þingmaður nefnir, eins og tvöfaldar greiningar milli ríkis og sveitarfélaga, milli grunnskóla og framhaldsskóla o.s.frv. Það er eitt af því sem við munum ávarpa í þessum bandormi sem er væntanlegur hingað inn í þingið.
Varðandi fjármögnunina þá er það líka þannig að ráðist var í umfangsmikla greiningu á fjárþörf ríkis og sveitarfélaga og Alþingi samþykkti þá fjárhæð sem talin var inn í frumvarpið. Síðan var því úthlutað á milli sveitarfélaga eftir ákveðinni aðferðafræði sem er ekkert hafin yfir gagnrýni og er eitthvað sem við þurfum að endurskoða jafnt og þétt í innleiðingarferlinu. En innleiðingarferlið gerði líka kröfu á okkur og nú erum við að byrja að kalla eftir upplýsingum, frá sveitarfélögum sem hafa verið í innleiðingunni, til að meta ágóðann á móti. Þegar við sjáum að í einstaka sveitarfélögum, eða heyrum af því, eru menn byrjaðir að loka barnaverndarmálum vegna þess að þeir leysa þau á grundvelli skóla og félagsþjónustu þá er það ágóði sem við þurfum (Forseti hringir.) að taka inn í kostnaðarmat frumvarpsins. Þetta er hluti af innleiðingunni.
Við erum komin í gegnum fyrsta árið. Nú erum við að kalla eftir upplýsingum um það í hvað fjármagnið fór, hvað mætti betur fara og svo gerum við breytingar og notum innleiðingartímann í það en vinnum þá vonandi áfram í þverpólitískri sátt hér á þingi.