153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

fyrirspurn um lækkun tolla og gjalda á innfluttar matvörur.

[16:21]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Bara örstutt í mestu vinsemd af því að þetta tengist því sem ég kom inn á áðan varðandi verðbólgu, dýra matarkörfu o.s.frv. Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á fyrirspurn sem ég lagði fram í lok september til matvælaráðherra um hvort ráðherra hafi beitt sér fyrir lækkun tolla og gjalda á innfluttar matvörur til að berjast gegn verðbólgu. Þetta gerði ég fyrir rúmum fjórum mánuðum síðan. Mun ráðherra kappkosta að breyta reglum um tolla og úthlutun tollkvóta sem geti leitt til lækkunar á matvöruverði?

Ég ætla ekki endilega að kvarta yfir að það sé mjög langt síðan, ég óska bara eftir því og það væri gott, fyrst ráðherra er í salnum, að þessari munnlegu fyrirspurn yrði svarað við tækifæri. Eins og ég segi, ég er ekki að gera rellu yfir því að henni hafi ekki verið svarað fyrr. Ég held miklu frekar að það væri þýðingarmikið að fá svarið, skilaboðin, núna af því að þetta tengist beint því hvaða aðgerðir stjórnvöld geta gripið til til þess að hafa áhrif á verð á matarkörfunnar.