153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

fyrirspurn um lækkun tolla og gjalda á innfluttar matvörur.

[16:23]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að árétta þessa beiðni um skriflega fyrirspurn til munnlegs svars. Sjálf hef ég sem ráðherra alltaf tekið því vel þegar þingið hefur óskað eftir því að ég sé hér til svara, og mun ég gera það hér eftir sem hingað til. Það hefur reyndar ekki gerst oft á þessu þingi að fyrirspurnafundir hafi yfir höfuð verið haldnir. Mér er ekki alveg kunnugt um ástæður þess, hvort það snýst um að fáar fyrirspurnir berist eða hvað það er. Þeim hefur allnokkrum verið beint til mín og þær hafa safnast upp á löngum tíma en því miður hefur ekki enn gefist tækifæri til að svara þeim. En ég lýsi því hér með yfir, virðulegur forseti, að ég er sérdeilis tilbúin til að svara þeim spurningum sem að mér er beint.