153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi.

[16:36]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég hef leyft mér að orða það þannig að saga sjókvíaeldis á Íslandi sé atvinnuuppbygging með íslenska laginu, kapp án forsjár. Því miður, vegna þess að atvinnugreinin skiptir miklu máli og á rétt á sér eins og næstum allar aðrar atvinnugreinar í heimi. Hér virðumst við vera með skýrslu í höndunum sem segir okkur að það þurfi að byrja upp á nýtt. En það er bagalegt vegna þess að eins og hér hefur komið fram í umræðunni þá var á árunum 2017–2019, þegar starfshópur starfaði í þáverandi sjávarútvegsráðuneyti og þá var hæstv. fyrrverandi ráðherra Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem kapphlaupinu var hleypt af stað og engar bremsur, eins og hæstv. matvælaráðherra var að segja. Það er mikill ábyrgðarhluti, bæði fyrir þáverandi ráðherra að hafa staðið þannig að málinu og ekki síður fyrir þá þrjá flokka sem mynda þessa ríkisstjórn af því að hún hefur setið á sjötta ár líklega og öll sátu þau saman í ríkisstjórn á þessum árum. En hér erum við stödd í dag. Nú er verkefnið að vinda ofan af þessu og sjá til þess að eftirlit með atvinnugreininni sé fullnægjandi, að allar nauðsynlegar rannsóknir séu fjármagnaðar og að almenningur, kjósendur, fólkið sem býr í þessu landi, hvort sem það er í nærsamfélögunum eða víðar um landið, njóti arðsins af þessari atvinnugrein eins og öllum öðrum sem hér starfa, hvort sem það er í formi skatta eða arðsins eða endurgjalds af auðlindinni, sem er að sjálfsögðu í takmörkuðu formi eldissvæða eins og þingmenn þekkja. Það er ósköp einfaldlega þannig, frú forseti, að Ísland skortir fyrst og fremst auðlindastefnu, altæka sem nær yfir allar auðlindaatvinnugreinar og ekki síst auðlindaákvæði í stjórnarskrána.