Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi.
Virðulegi forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur nú til umfjöllunar nýútkomna stjórnsýsluúttekt ríkisendurskoðanda um sjókvíaeldi. Nú hefur nefndin fengið kynningu á skýrslunni og viðbrögð ráðuneytis við henni. Eðli málsins samkvæmt á eftir að kalla til fleiri gesti og kafa dýpra í efnistök hennar. Það vakti því furðu mína að þetta mál skyldi vera á dagskrá nú við upphaf umfjöllunar nefndarinnar en gott og vel. Persónulega mun ég ekki úttala mig um efnistök skýrslunnar fyrr en eftir að vandaðri yfirferð nefndarinnar er lokið, ekki það að tvær mínútur séu nóg. Skýrslan er til marks um nýjan blómstrandi atvinnuveg sem stjórnvöldum hefur einfaldlega ekki tekist að ná utan um. Skýrslan er unnin að beiðni ráðherra og veitir okkur góða innsýn í umfang sjókvíaeldisins hér á landi og þá stjórnsýslu sem atvinnugreinina snertir. Atvinnugreinin hefur vaxið hratt en utanumhald stjórnvalda um greinina hefur ekki vaxið á sama hraða. Það er mikilvægt og jákvætt að hafa fengið þessa skýrslu í hendurnar og að hún sé til umfjöllunar á þinginu því að fram undan er mjög svo aðkallandi stefnumótun stjórnvalda um atvinnugreinina til framtíðar, enda er fiskeldi risastórt efnahagsmál, samfélagsmál og ekki síst byggðamál. Af því tilefni verð ég að fá að nefna málefni Fiskeldissjóðs en honum er ætlað að veita sveitarfélögum styrki til uppbyggingar innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað. Lögfest var að hlutdeild af álagningu gjalds á fisk sem slátrað er í sjókvíaeldi skuli fara til sveitarfélaga þar sem sjókvíaeldið er, þó þannig að sveitarfélögin þurfa að sækja um styrkinn. Sveitarfélög sem um ræðir hafa harðlega gagnrýnt þetta fyrirkomulag og ég tek undir með þeim. Leysa þarf þetta ógagnsæja flækjustig sem miðstýrt er frá Reykjavík, svo ekki sé minnst á þá forræðishyggju sem felst í núverandi fyrirkomulagi. Eðlilegra væri að sveitarfélögin hefðu beinar tekjur fyrir aðgengi að náttúruauðlindum innan þeirra svæðis.