153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi.

[16:40]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda og hæstv. ráðherra fyrir að vera með okkur í þessari mikilvægu umræðu í dag. Mig langar til að byrja þessar tvær mínútur mínar á því að vísa í 1. mgr. laga um fiskeldi frá því 2008, sem sagt 15 ára gamalt markmiðsákvæði. Þar stendur, með leyfi forseta, í 1. mgr.:

„Markmið laga þessara er að skapa skilyrði til uppbyggingar fiskeldis og efla þannig atvinnulíf og byggð í landinu, stuðla að ábyrgu fiskeldi og tryggja verndun villtra nytjastofna. Skal í því skyni leitast við að tryggja gæði framleiðslunnar, koma í veg fyrir hugsanleg spjöll á villtum nytjastofnum og lífríki þeirra og tryggja hagsmuni þeirra sem nýta slíka stofna. Til að ná því markmiði skal tryggt að eldisbúnaður og framkvæmd í sjókvíaeldi standist ströngustu staðla sem gerðir eru fyrir fiskeldismannvirki í sjó.“

Í 2. mgr. segir svo:

„Við framkvæmd laganna skal þess ávallt gætt að sem minnst röskun verði á vistkerfi villtra fiskstofna og að sjálfbærri nýtingu þeirra sé ekki stefnt í hættu.“

Fyrir 15 árum var þetta markmiðsákvæðið. Það kemur glögglega í ljós, í kolsvartri skýrslu Ríkisendurskoðunar um laxeldið, hvernig til hefur tekist. Meginmarkmið okkar á einmitt að vera að tryggja sátt við greinina, vaxandi grein sem við getum ekki horft fram hjá að á að geta gefið okkur alveg ótrúlega mikil tækifæri og uppbyggingu ef við gerum þetta í sátt.

Tíminn er náttúrulega afskaplega stuttur. En við verðum líka að líta til þess, eins og fram hefur komið, að eftirlitið með fiskeldinu er í raun í skötulíki. Við höfum líka heyrt þær sögur, þegar kvíar hafa sprungið og eldisfiskur sloppið út, að það hafi tekið marga daga, og allt upp í tíu daga, fyrir eftirlitsaðila að koma sér vestur til að skoða hlutina. Við verðum að færa þetta nær.

Virðulegi forseti. Ég syng lengri söng á eftir.