153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi.

[16:43]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Hér í dag ræðum við enn eitt gullæðið sem Ísland hefur gengið í gegnum. Eitt sinn ætluðu bændur á Íslandi að verða ríkir á minkarækt. Svo vildi hvert sveitarfélag fá til sín stóriðju. Nú síðast hefur verið keppt um að fá sjókvíaeldi í hvern einasta fjörð. Virðist þá engu skipta hvort slíkt sé gott fyrir umhverfið eða hvort það gæti truflað siglingaleiðir eða fjarskiptastrengi. Rétt eins og í hverju öðru gullæði eru lög og reglur látin sem vind um eyru þjóta og ríkisstjórnin tryggir að gullgrafararnir séu ekki truflaðir af einhverju regluverki sem gæti hægt á þeim. Í staðinn eru gullgrafararnir duglegir við að leggja inn á kosningasjóði stjórnmálaflokkanna.

Nú liggur fyrir svört skýrsla Ríkisendurskoðunar sem dregur upp á yfirborðið vinnubrögð ríkisstjórnarinnar á þessu sviði. Þrátt fyrir að lögum hafi verið breytt á undanförnum áratug í því skyni að auka eftirlit og tryggja vernd umhverfisins, þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn tryggt það með því að draga lappirnar í reglugerðarsetningu og með því að draga úr fjármagni til rannsókna og eftirlits að þessir gullgrafarar hafa fengið að ganga um firði landsins eins og þeir séu þeirra einkaeign. Þegar reglurnar eiga eitthvað að trufla gröftinn þá er lögum breytt í skjóli nætur til þess eins að tryggja hagsmuni gullgrafara. Já, slíkt er skeytingarleysið gagnvart náttúru og lífríkinu. Norskir sérfræðingar lýstu ástandinu á Íslandi fyrir sjö árum síðan sem svo að hér væri enn villta vestrið, þar sem nær engar hömlur væru á því að setja upp sjókvíaeldi. Hér væri enn langt í land að reglur um vernd umhverfisins og lífríkisins yrðu jafn strangar og í Noregi en aðalbaráttan væri fremur háð um það hvaða valdaklíka fengi hvaða fjörð. (Forseti hringir.) Er það nema von að stór hluti fiskeldis hér á landi sé nú í eigu norskra fjárfesta?