153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi.

[16:45]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Á vorþingi 2019 var lagarammi um fiskeldi uppfærður og var þar lagt upp með að efla frekari umgjörð um sjálfbært fiskeldi til framtíðar. Í meðferð þingsins var einnig byggt enn betur undir kröfu um vernd villtra nytjastofna ásamt því að gætt yrði að umhverfisvernd með mótvægisaðgerðum og ströngu eftirliti. Það var sannarlega vilji til þess að móta góða umgjörð um greinina hér á þinginu en því miður koma niðurstöður skýrslunnar sem við ræðum hér ekki á óvart þar sem bæði sveitarfélög og laxeldisfyrirtæki hafa um tíma bent á hluti sem koma fram í skýrslunni sem betur megi fara.

Það eru ákveðin vonbrigði að fá það staðfest hversu illa hefur gengið að byggja upp umgjörð og stjórnsýslu utan um greinina samkvæmt lögum sem sett hafa verið. En þá sakna ég þess að ekki hafi verið komið inn á hlutverk sveitarfélaganna með einhverju móti í þessari skýrslu. Sveitarfélögin njóta svo sannarlega þess mikla drifkrafts sem fiskeldið hefur í för með sér. Íbúum hefur fjölgað á svæðum sem áður hafa átt undir högg að sækja. Fjölgun hefur orðið í atvinnutækifærum og aldurspíramídinn hefur tekið breytingum þar sem hlutfallsleg fjölgun yngra fólks hefur orðið í umræddum sveitarfélögum.

Þá er í skýrslunni ábending til matvælaráðuneytisins um að endurskoða lög um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og Fiskeldissjóðs í heild sinni. Þessi lög voru samþykkt á vordögum 2019 þar sem einungis hluti tekna renna af gjaldtökunni og mynda samkeppnissjóð sem sveitarfélögin geta sótt í til innviðauppbyggingar. Framsókn hefur ítrekað lagt fram þingsályktunartillögu sem snýr að því að yfirfara laga- og reglugerðaumhverfi gjaldtökunnar í heild og sérstaklega það sem snýr að sveitarfélögum þar sem sjókvíaeldi er stundað. Markmiðið er að tryggja að tekjur af slíkri gjaldtöku standi undir nauðsynlegum verkefnum sveitarfélaga sem standa næst eldinu ásamt því að tryggð sé sjálfbærni þeirra hafna og samfélaga þar sem þessi atvinnustarfsemi er stunduð. Með þessu móti er tækifæri til að vinna að betri sátt um (Forseti hringir.) greinina og hér er klárlega tækifæri til að gera betur, líkt og hæstv. matvælaráðherra hefur sagt.