153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi.

[16:52]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Virðulegi forseti. Fyrstu ár uppbyggingar sjókvíaeldis á norskum laxi við landið einkenndust um margt af óreiðu og skipulagsleysi. Of hratt var farið áður en stjórnsýslulegir innviðir höfðu verið byggðir upp; reglur um útgáfu leyfa og gjaldtöku, fullnægjandi eftirlit, rannsóknir og trúverðugt mat á áhættu fyrir vistkerfi og þá sérstaklega fyrir íslenska laxastofninn, en ekki síður að hagsmunir þeirra byggðarlaga þar sem sjókvíaeldið hefur byggst upp væru tryggðir sem best, að við innviðauppbyggingu í sveitarfélögunum þar sem starfsemin fer fram njóti þau réttmætrar hlutdeildar í gjöldum af starfsemi tengdri sjókvíaeldinu.

Þá þarf að gera betur í að tryggja að rannsóknir og vísindaþekking byggist upp í nærumhverfi fiskeldisstarfseminnar. Það er stjórnsýslulega ótækt að ein stofnun, Hafrannsóknastofnun, hafi þar öll hlutverk við borðið, fari með nánast allar rannsóknir, gerð vöktunaráætlana, framkvæmd vöktunarverkefna, greiningu niðurstaðna og fullnaðarvald til stjórnsýslulegra ákvarðana. Þá hefur stofnunin á sama tíma stórkostlegra fjárhagslegra hagsmuna að gæta af verkefnum sem leiða af fiskeldinu og sömuleiðis þjónusturannsóknum í laxveiðiám á Íslandi. Núverandi staða samræmist ekki góðum stjórnsýsluháttum og grefur undan trúverðugleika þess faglega ferlis sem þarf að vera til staðar við vandaða ákvarðanatöku. Hér þurfa stjórnvöld og löggjafinn að grípa til ráðstafana til að tryggja faglegt ferli ákvarðanatöku í samræmi við ríkjandi hefð um góða stjórnsýsluhætti. Ein leið er að fela öðrum sjálfstæðum og hæfum rannsóknastofnunum og vísindamönnum í landinu, ekki síst á svæðum sem málin varða sérstaklega, stærra hlutverk í rannsóknum og vöktunarverkefnum sem bindandi tillögur Hafrannsóknastofnunar byggja á.

Virðulegi forseti. Í upphafi vantaði að gerð væri fagleg úttekt á samlegðaráhrifum stóraukins fiskeldis í sjó hér við land á lífríki áður en ráðist var í stórfellda útgáfu sjókvíaeldisleyfa. Ekki lá fyrir verk- eða viðbragðsáætlun til að vernda villta stofna laxfiska fyrir erfðamengun, sjúkdómum, sníkjudýrum og öðrum áföllum sem geta hlotist af því að eldisfiskur sleppi úr haldi.(Forseti hringir.) Við ættum síðan að spyrja okkur hvort við viljum frekar samþjappað eignarhald erlendra auðhringa á fiskeldisleyfum eða dreifðara eignarhald þar sem samfélagslegir hagsmunir viðkomandi byggðarlaga vega þyngra.