Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi.
Spillingin getur verið svo heimilisleg, sagði hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, í Kastljósi á dögunum. Spilling hefur verið skilgreind sem misbeiting valds í þágu sérhagsmuna. Spilling er illvíg, hún er illvíg samfélagsleg meinsemd. Hún leiðir til mismununar, hamlar efnahagslegri þróun, skerðir lífskjör og eykur ójöfnuð. Spilling veldur umhverfisspjöllum og mengun, stuðlar að sóun auðlinda og grefur undan heilbrigðum viðskiptaháttum. Hún skekkir samkeppni og skaðar fyrirtæki, starfsfólk og neytendur og bitnar mest á þeim sem minnst vald hafa og áhrif. Spilling er alltaf ógn við hagsmuni almennings. — Og spilling er einmitt það fyrsta sem manni dettur í hug við lestur skýrslu Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi hér á landi.
Ég skil vel áhyggjur íbúa sveitarfélaga sem horfa fram á fólksfækkun og skerta þjónustu vegna þess að engin atvinnutækifæri verða til á atvinnusvæði þeirra. Ég skil vel að sveitarstjórnarmenn vilji gera allt sem mögulegt er til að laða að fyrirtæki sem geta boðið upp á verðmæt störf og uppbyggingu. Ég er líka sannfærð um að þau vilja ekki að það gerist á kostnað umhverfis og lífríkis því að þau vita að þá mun þeirra góðæri verða stutt og betra heima setið en af stað farið.
Það er Alþingi, löggjafinn, sem á að setja leikreglurnar og sjá til þess að eftirlitið sé öflugt og skilvirkt með starfsemi sem nýtir auðlindir þjóðarinnar. Um reglur og umgjörð eiga stærstu fyrirtækin sem vilja nýta auðlindina ekki að ráða mestu. Það á alltaf að greiða sanngjarnt og eðlilegt gjald fyrir afnot af náttúruauðlindum í eigu þjóðarinnar. Verkefnið er að taka skýrsluna alvarlega og ráðast strax í aðgerðir.