Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi.
Frú forseti. Ég fæ kannski að byrja á því að koma því á framfæri að mér þykir það um margt óeðlilegt að við séum hér í þingsal á þessum tímapunkti að ræða þessa skýrslu sem kom tiltölulega nýlega inn á borð hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og vinnsla skýrslunnar því rétt svo hafin, ef svo má segja. Öll vinnsla nefndarinnar hvað varðar einstök atriði og móttaka viðkomandi gesta og umsagnaraðila er algjörlega eftir. Mér finnst vert að nefna það þar sem undir er ofboðslega mikilvægt mál. Ég held því að það sé mikilvægt fyrir þingið að alla jafna sé farið með svo mikilvæg mál eftir hefðbundnu verklagi þar sem málin eru skoðuð ofan í kjölinn hjá viðkomandi nefnd áður en við fellum dóma hér í þingsal.
Að því sögðu er ofboðslega mikilvæg atvinnugrein undir, sem er mikilvægt að fái að byggjast upp sjálfbært til hagsbóta fyrir samfélagið allt, ekki bara sem mikilvæg auðlind fyrir ríkissjóð, ekki bara sem mikilvægt byggðamál, framtíðarmál með nýrri matvælaframleiðslu o.s.frv.; þar undir er þessi skýrsla mjög mikilvægt plagg. Ég hef lesið í gegnum hana og get sagt fyrir mitt leyti að þar held ég að sé mýmargt sem muni koma að gagni til að við höldum áfram að stíga skref áfram. Þar eru líka önnur atriði sem ég tel að þurfi betri skoðunar við og glöggvunar áður en ég fyrir mitt leyti kveð upp dóm en ég heyri hér að það eru margir sem eru kannski tilbúnir í að fella dóma og jafnvel sleggjudóma þrátt fyrir að við séum ekki komin lengra í vinnunni. Það þykir mér miður. Ég held að við eigum þvert á móti að taka (Forseti hringir.) þeirri vinnu eins alvarlega og kostur er og vera vandvirk svo að þetta mikilvæga mál fái þá athygli og það framhald sem það á skilið.